VELKOMIN Í

HELLANA VIÐ HELLU

Komdu með inn í töfrandi undirheima Suðurlands

FERÐIRNAR OKKAR

Hellarnir á Hellu bjóða upp á spennandi leiðsögn um dularfulla manngerða hella. Hellarnir eru friðlýstar minjar þar sem þú færð innsýn í leyndardóma og sögur hellanna á skemmtilegan hátt.

LEYNDARDÓMAR HELLANNA

Viltu uppgötva einn af földu fjársjóðum Íslands með leiðsögumanni sem þekkir vel til? Komdu með í skemmtilega ferð í Undirheima Suðurlands og kynntu þér dularfullu Hellana við Hellu.

Lúxusferð

Lúxusferð er einstök leið til að kynnast sögufrægu Hellunum við Hellu. Njóttu þess að fá einkaleiðsögn og smakka viskí, gin og mjöð auk góðgætis úr héraði.

Einkaferð

Skoðið Hellana við Hellu í einkaferð með leiðsögn þar sem upplifunin er sniðin að ykkar hópi. Einkaferð hentar alls kyns hópum svo sem stórfjölskyldum, starfsmanna- og vinahópum.

VETRARKÓÐI

Notaðu afsláttarkóðann WINTER þegar þú bókar ferðina LEYNDARDÓMAR HELLANNA.
Gildir frá 1. nóvember til 31. mars.

FORN LEYNDARMÁL ÍSLANDS AFHJÚPUÐ

Fornir manngerðir hellar hafa fundist víða á Suðurlandi og hellarnir á Ægissíðu við Hellu eru meðal þeirra merkilegustu. Um er að ræða einn elsta varðveitta fornminjastað Íslands, þótt nákvæmur aldur og uppruni hellanna sé enn óviss. Sumar kenningar benda jafnvel til þess að þeir séu eldri en norrænt landnám á Íslandi. Þessi sögustaður hefur verið í umsjá sömu fjölskyldu í fimm kynslóðir. Á síðustu árum hefur fjölskyldan opnað svæðið fyrir gestum, sem geta í ferð með leiðsögn skoðað þrjá hella og litið inn í tvo aðra.

VIÐ HRINGVEGINN

Við erum frábærlega staðsett og því tilvalið að kíkja til okkar ef þú ert á ferð um Suðurland.
Ekki missa af tækifærinu til að upplifa þennan einstaka stað!

HVAÐ SEGJA GESTIR?

Allison Blevings
★★★★★
Frábær ferð – ótrúlegir hellar og saga, og Stefán er mjög fróður (og fyndinn 😉 – algjör skylda að sjá á Hellu!
Tyler Kelehan
★★★★★
Stefán er frábær leiðsögumaður, mjög fyndinn og fróður. Ég mæli eindregið með þessari ferð fyrir alla sem eitthvað kveður að.
Julian Sahlin
★★★★★
Leiðsögumaðurinn var frábær og heillandi og hellarnir ótrúlega áhugaverðir. Mæli eindregið með þessu!
Pontus Klint
★★★★★
Góður og mjög fróðlegur leiðsögumaður, og það var gaman að skoða sig um í hellunum vegna allra ristnanna
George Carey
★★★★★
Mögnuð menningarupplifun, enn betri vegna leiðsögumanns sem brennur af ástríðu fyrir sögu og uppruna Íslands.
James Fingas
★★★★★
Þetta var algjörlega heillandi. Það eru hundruð svona hella og enginn veit fyrir víst hver gerði þá eða hvenær. Takk Stefán!