Kynntu þér Hellana á Hellu í einkaferð og njóttu ferðar sem er sérsniðin að þér og þínum hópi.
um ferðina
Í einkaferð upplifir hópurinn Hellana við Hellu á sínum eigin forsendum með einkaleiðsögn. Okkar frábæru leiðsögumenn fara yfir sögu hellanna á áhugaverðan og skemmtilegan máta og gestir velta fyrir sér leyndardómum þessara merkilegu hella. Hellarnir eru friðlýstar minjar og eru taldir meðal elstu varðveittu fornminja á Íslandi. Sumir telja að þeir hafi verið gerðir af Keltum og séu jafnvel eldri en landnám norrænna manna.
Tilvalið fyrir fjölskyldur og hópa af öllum stærðum sem leita að eftirminnilegri ferð.
Bókaðu hér á vefnum eða hafðu samband við okkur beint með tölvupósti eða í síma.
○ STAÐSETNING
Hellarnir við Hellu eru á frábærum stað við þjóðveg 1 (hringveginn) á Suðurlandi.
○ hvað er innifalið?
Einkaferð með leiðsögn.
○ athugið
○ Ferðin tekur um það bil 60–90 mínútur. Hægt að velja um íslensku eða ensku.
○ Einkaferð er aðeins hægt að bóka fyrir sér hópa og bóka þarf fyrirfram. Hægt er að bóka á þessari síðu, með tölvupósti eða símtali.
○ Klæddu þig eftir veðri og ekki gleyma myndavélinni! Það gæti verið góð hugmynd að skilja háu hælana eftir heima.
○ Afbókunarskilmálar
Ókeypis afbókun allt að 2 dögum (48 klukkustundum) fyrir viðburðinn. Nánari upplýsingar má finna í skilmálum okkar.
Ertu með spurningar?
Ef þú hefur spurningar um ferðina, hvar á að mæta eða eitthvað annað, kíktu þá á algengar spurningar. Þar finnur þú svör við helstu spurningum.