um okkur

fjölskyldufyrirtæki

Fjölskylda okkar hefur séð um hellana í nærri 200 ár.

ARFLEIFÐ OKKAR, FÓLKIÐ OKKAR

Fjölskyldan hefur séð um hellana á Ægissíðu í nærri 200 ár. Í dag höldum við þeirri hefð áfram sem fjölskyldufyrirtæki og vinnum að því að varðveita þennan einstaka hluta af menningararfi Íslands og deila honum með gestum okkar.

Hellarnir eru manngerðir, en enginn veit nákvæmlega hvenær þeir voru fyrst grafnir. Fyrir fjölskylduna snýst endurgerð hellanna um meira en að varðveita gamlar minjar; hún snýst um að halda sögum þeirra lifandi. Hver hellir geymir brot af sögu sem hefur gengið á milli kynslóða. Við segjum sögur forfeðra okkar af dularfullum hellum og fyrstu landnemunum. 

Við leggjum áherslu á sjálfbæra ferðaþjónustu og vinnum náið með nærsamfélaginu. Leiðsögumenn okkar eru af svæðinu og við nýtum alltaf vörur og þjónustu úr nærumhverfinu þegar mögulegt. Við erum einstaklega heppin með frábært starfsfólk sem hefur sterk tengsl við svæðið. Þau hafa einlægan áhuga á sögu Íslands, sem og á fólkinu og sögunum sem hafa mótað héraðið. Leiðsögumennirnir eru ástríðufullir sögumenn sem hafa mikla ánægju af því að taka á móti gestum og kynnast fólki hvaðanæva úr heiminum.

Með því að vinna með heimafólki og fyrirtækjum á svæðinu sköpum við upplifanir sem gagnast bæði gestum og samfélaginu. Íslenskir gestir geta uppgötvað staði og sögur sem gætu jafnvel verið nýjar fyrir þeim, á meðan erlendir gestir fá að upplifa Ísland í gegnum fólkið sem þekkir það best.

Uppgerð hellanna er unnin í samráði við og undir eftirliti Minjastofnunar Íslands. Langtímamarkmið okkar er að halda áfram að endurgera hellana, opna fleiri þeirra fyrir almenningi og tryggja að komandi kynslóðir geti upplifað þennan merkilega hluta af sögu landsins.

ALLT AFA AÐ ÞAKKA

Að baki verkefninu í dag standa systkini, dóttir annars þeirra og eiginmaður hennar. Sagan nær þó fleiri kynslóðir aftur í tímann.

Faðir systkinanna tók virkan þátt í starfinu á meðan hann lifði en það var afi þeirra sem fyrst kveikti ástríðu fjölskyldunnar fyrir hellunum. Hann miðlaði þekkingu sinni, sögum og forvitni um fortíðina og hvatti fjölskylduna til að deila þessum arfi með gestum.

Í dag lifir sú ástríða áfram í teyminu okkar. Saman segjum við sögu hellanna og sögurnar sem þeim tengjast á líflegan, skemmtilegan og fræðandi hátt. Teymið okkar er skipað heimafólki með sterk tengsl við nærumhverfið. Það fléttar eigin þekkingu og persónulegum tengslum við staðinn inn í hverja heimsókn.

Ekki hika við að spyrja! Hvort sem þú vilt fræðast meira um hellana, íslenska sögu, mannlífið á svæðinu eða einfaldlega fá ábendingar frá heimafólki, þá deilir starfsfólkið okkar þekkingu sinni og reynslu með ánægju.