Algengar spurningar
Hér finnur þú svör við nokkrum af þeim spurningum sem við fáum oftast.
Ekki hika við að hafa samband ef það er eitthvað fleira sem þú vilt vita.
○ Hvenær eru ferðirnar?
| 24. ágúst til október | Kl. 10:00,12:00,14:00, 16:00 |
| Nóvember til maí | Kl. 10:00, 12:00, 14:00 |
| 1. júní – 24. júní | Kl. 10:00, 12:00, 14:00, 16:00 |
| 25. júní – 23. ágúst | Kl. 10:00, 11:00, 12:00, 13:00, 14:00 og 16:00 |
○ Hvað tekur hver ferð langan tíma?
Ferðirnar taka 60–75 mínútur.
○ Hvað er innifalið í fjölskyldupakkanum?
Ferð með leiðsögn fyrir 2 fullorðna og 2 börn (6–15 ára)
○ Hversu kalt er í hellunum? Hvernig er best að klæða sig?
Í hellunum er um 4°C hiti allt árið. Klæddu þig eftir veðri, því ganga þarf utandyra á milli hellanna.
○ Þarf að vera í sérstökum skóm?
Ekki þarf sérstakan skóbúnað fyrir hellana. Yfir veturinn mælum við þó með traustum skóm vegna snjós eða hálku.
○ Er keyrt að hellunum?
Nei. Ferðirnar eru alfarið gangandi, svo ekki þarf að keyra.
○ Hversu löng er gangan?
Mjög stutt, innan við 600 m (0,4 mílur).
○ Má taka myndir? Má nota flass?
Já, taktu fullt af myndum og endilega deildu þeim sem víðast. Þú mátt nota flass.
○ Þarf að borga fyrir bílastæði?
Já! Bílastæðin eru ókeypis. 😊
○ Hvar á að mæta?
Þú hittir leiðsögumanninn okkar í móttökunni, þar sem ferðin hefst.
○ Þarf að bóka fyrirfram?
Ekki þarf að bóka fyrirfram en þér er velkomið að gera það á vefsíðunni. Miða er einnig hægt að kaupa beint í móttökunni fyrir ferð.
○ Get ég skoðað hellana án leiðsögumanns?
Nei. Hellarnir eru friðlýstar minjar og því verða allir gestir að fara í ferð með leiðsögn.
○ Er aðgengi fyrir hjólastóla í hellunum?
Því miður ekki. Í sumum hellunum eru tröppur og þröngir gangar.
○ Eru þetta íshellar eða hraunhellar?
Nei. Þetta eru fornir manngerðir hellar, höggnir í sandstein og móberg, með fjölbreyttum jarðlögum.
○ Getum við bókað einkaferð?
Já! Hægt er að bóka einkaferðir fyrirfram á vefsíðunni okkar, með tölvupósti (info@cavesofhella.is) og síma. Við bjóðum upp á tvenns konar einkaferðir:
- Hefðbundin einkaferð með leiðsögumanni af svæðinu
- Lúxusferð – hefðbundin ferð með smakki á Flóka áfengi og sælkeraréttum úr héraði
○ Eru draugar eða álfar í hellunum?
Sumir hafa sést; þú verður að koma sjálf(ur) til að komast að því.
○ Hversu langt er í hellana frá Reykjavík og Vík?
Við erum á frábærum stað við hringveginn, miðja vegu milli Reykjavíkur og Víkur, um 100 km í hvora átt.
○ Eru hellarnir í einkaeigu?
Já, fjölskylda okkar hefur annast hellana í nærri 200 ár. Hellarnir eru friðlýstar minjar og endurgerðarverkefnið er unnið í samráði við Minjastofnun Íslands.
○ Er þetta fjölskyldufyrirtæki?
Já, við opnuðum fjóra hella fyrir almenningi í lok ársins 2019. Fjölskyldan leggur sig fram um að endurgera hellana og halda sögunni lifandi. Árið 2024 opnuðum við fimmta hellinn.
○ Megum við skrifa á húsið?
Já, gríptu penna í móttökunni! Í hellunum eru ristur í veggjum með nöfnum, upphafsstöfum og teikningum, og nú bjóðum við gestum okkar að skrifa nöfnin sín að gömlum íslenskum sið í gestabókina okkar… sem er móttökuhúsið. Kvittaðu fyrir komuna!
Ertu enn með spurningar?
Finnurðu ekki svarið sem þú leitar að? Við aðstoðum gjarnan.
Sendu okkur tölvupóst og teymið okkar svarar þér eins fljótt og auðið er.