Ertu að leita að einstökum stað fyrir næsta viðburð? Hellarnir við Hellu bjóða upp á ógleymanlega umgjörð, umvafna leyndardómum, sögu og stemningu.
SÉRSTÖK TILEFNI KALLA Á SÉRSTAKA VIÐBURÐI
Í hellunum okkar eru haldnir hellakvöldverðir og brúðkaup. Einnig er hægt að leigja þá fyrir ýmis tilefni, svo sem fyrirtækjaviðburði, óvissuferðir, afmælisveislur og smakkviðburði með vörum úr héraði.
Auk einkaviðburða hafa hellarnir verið einstök umgjörð fyrir kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu, tónlistarmyndbönd og auglýsingatökur. Hellarnir skapa magnaða stemningu fyrir tónleika, litlar leiksýningar, sögu- og rithöfundakvöld. Hvert sem tilefnið er, þá er sögulegt umhverfið umgjörð sem á sér enga hliðstæðu.
Gerðu viðburðinn þinn sérlega eftirminnilegan og fagnaðu tilefninu í Hellunum við Hellu.
BRÚÐKAUP
Þar sem saga og rómantík sameinast
VÍKINGAVEISLA
Einstök matarupplifun
sérstakur viðburður
Töfrandi staður fyrir viðburðinn þinn.