FERÐIRNAR OKKAR
Hellarnir á Hellu bjóða upp á spennandi leiðsögn um dularfulla manngerða hella. Hellarnir eru friðlýstar minjar þar sem þú færð innsýn í leyndardóma og sögur hellanna á skemmtilegan hátt.
LEYNDARDÓMAR HELLANNA
Viltu uppgötva einn af földu fjársjóðum Íslands með leiðsögumanni sem þekkir vel til? Komdu með í skemmtilega ferð í Undirheima Suðurlands og kynntu þér dularfullu Hellana við Hellu.
Lúxusferð
Lúxusferð er einstök leið til að kynnast sögufrægu Hellunum við Hellu. Njóttu þess að fá einkaleiðsögn og smakka viskí, gin og mjöð auk góðgætis úr héraði.
Einkaferð
Skoðið Hellana við Hellu í einkaferð með leiðsögn þar sem upplifunin er sniðin að ykkar hópi. Einkaferð hentar alls kyns hópum svo sem stórfjölskyldum, starfsmanna- og vinahópum.
VETRARKÓÐI
Notaðu afsláttarkóðann WINTER þegar þú bókar ferðina LEYNDARDÓMAR HELLANNA.
Gildir frá 1. nóvember til 31. mars.
FORN LEYNDARMÁL ÍSLANDS AFHJÚPUÐ
Fornir manngerðir hellar hafa fundist víða á Suðurlandi og hellarnir á Ægissíðu við Hellu eru meðal þeirra merkilegustu. Um er að ræða einn elsta varðveitta fornminjastað Íslands, þótt nákvæmur aldur og uppruni hellanna sé enn óviss. Sumar kenningar benda jafnvel til þess að þeir séu eldri en norrænt landnám á Íslandi. Þessi sögustaður hefur verið í umsjá sömu fjölskyldu í fimm kynslóðir. Á síðustu árum hefur fjölskyldan opnað svæðið fyrir gestum, sem geta í ferð með leiðsögn skoðað þrjá hella og litið inn í tvo aðra.