undirheimar

Skemmtileg leiðsögn um áhugaverða og leyndardómsfulla hella.

um ferðina

Stígðu inn í eina forvitnilegustu ráðgátu Íslands. Hellarnir við Hellu bjóða upp á spennandi hellaferðir með leiðsögn um fimm dularfulla manngerða hella. Þessi merkilegi sögustaður hefur verið í umsjá sömu fjölskyldu í fimm kynslóðir. Á síðustu árum hefur fjölskyldan gert hellana aðgengilega gestum svo þeir geti fengið innsýn í heillandi fortíð. Hellarnir eru friðlýstar minjar og eru taldir meðal elstu fornminja sem varðveist hafa á Íslandi. Sumar kenningar benda jafnvel til þess að þeir séu eldri en landnám norrænna manna. Komdu í klukkustundar leiðsögn með staðkunnugum leiðsögumanni og njóttu áhugaverðrar og grípandi frásagnar.

Boðið er upp á leiðsögn á ensku nokkrum sinnum á dag allan ársins hring. Leiðsögn á íslensku er fyrsta laugardag í hverjum mánuði kl. 14:00 og oftar yfir sumartímann. Skoðaðu bókunarkerfið hér á síðunni til að sjá tímasetningar leiðsagna.

○ STAÐSETNING

Hellarnir við Hellu eru á frábærum stað við þjóðveg 1 (hringveginn) á Suðurlandi.

○ hvað er innifalið?

○ Aðgangseyrir og klukkustundar leiðsögn á ensku nokkrum sinnum á dag .
○ Leiðsögn á íslensku fyrsta laugardag hvers mánaðar kl. 14:00 og oftar yfir sumartímann.

○ athugið

Við skoðum hellana og umhverfi þeirra, svo vinsamlegast búðu þig undir stutta og auðvelda göngu á milli hellanna.

Klæddu þig eftir veðri og ekki gleyma myndavélinni! Það gæti verið góð hugmynd að skilja háu hælana eftir heima. 

○ Afbókunarskilmálar

Ókeypis afbókun allt að einum degi (24 klukkustundum) fyrir viðburðinn. Nánari upplýsingar má finna í skilmálum okkar.

Ertu með spurningar?

Ef þú hefur spurningar um ferðina, hvar á að mæta eða eitthvað annað, kíktu þá á algengar spurningar. Þar finnur þú svör við algengustu spurningunum og allt sem þú þarft að vita fyrir ævintýrið.