Hugmyndir eru uppi um að kortleggja manngerðu hellana við Hellu betur og nýta upplýsingarnar til að styrkja stöðu þeirra sem áfangastaðar ferðamanna. Kenningar eru um að svæðið hafi verið þéttbýlt til forna, jafnvel fyrir hið meinta landnám norrænna manna.
Árni Freyr Magnússon, einn forsvarsmanna Hellanna við Hellu, segir að fyrirspurnum erlendis frá hafi fjölgað eftir að ferðamönnum tók að fjölga á ný. „Við höfum fengið fleiri fyrirspurnir, bæði erlendis frá og frá Íslendingum. Við byrjuðum að bjóða upp á ferðir í janúar 2020, rétt áður en kórónuveirufaraldurinn skall á, og því voru fáir erlendir ferðamenn í fyrra, en flestir gestir okkar hafa verið Íslendingar og við gátum tekið á móti þeim síðasta sumar,“ segir Árni Freyr.
Við bæjardyr Hellu
Hellarnir við Hellu eru manngerðir hellar á Ægissíðu, steinsnar frá brúnni yfir Ytri-Rangá við Hellu. Fyrirtækið er markaðssett undir enska heitinu Caves of Hella og er með móttöku við þjóðveginn. Fjórir hellar eru nú til sýnis. Tveir þeirra eru tengdir saman með göngum. Þriðji hellirinn er mun minni og er enn notaður sem geymsla. Fjórði hellirinn er við gamla bæjarhlaðið á Ægissíðu 1 og þar er að finna stóran kross, að sögn Árna Freys, og grind á vegg.

Hellarnir eru einkum markaðssettir á samfélagsmiðlum.
„Við erum líka í góðu samstarfi við hótelin í nærsamfélaginu á Hellu og það hjálpar mikið að fá gesti í gegnum þau. Við sjáum fjölgun erlendra ferðamanna á hótelunum. Margir hafa sagt okkur að forsendan sé að það spyrjist út meðal erlendra ferðamanna að staðurinn sé vinsæll hjá heimamönnum. Þannig að við vonum það besta,“ segir Árni Freyr.
Hann segir gestina skiptast í tvo hópa. „Annars vegar kemur til okkar fólk sem hefur ákveðið að koma, veit af okkur og vill kynnast þessari sögu. Svo er það fólkið sem gistir á Hellu, áttar sig á því að þar er afþreying í boði og vill koma. Þessir gestir eru í mestu uppáhaldi hjá mér því hellarnir koma þeim oft svo skemmtilega á óvart. Eða eins og einn ferðamaður orðaði það: „Við vissum að við myndum sjá eitthvað neðanjarðar en ekki að það væri svona áhugaverð saga á bak við það.““
Fréttin birtist í viðskiptahluta Morgunblaðsins