Í þúsundir ára hefur fólk fagnað hjónabandinu sem upphafi nýs kafla í lífinu. Í öllum menningarheimum og hefðum sameina brúðkaup fjölskyldu og vini sem verða vitni að heitstrengingu para og fagna tilefninu á þá vegu sem endurspeglar persónuleika þeirra.
Ást greypt í stein
Mörg pör leita nú að einhverju öðruvísi en hefðbundnum brúðkaupsstað. Hvort sem það er að gefa hvort öðru jáyrði á fjallstindi, í loftbelg eða neðansjávar, eru einstakir staðir orðnir hluti af ævintýrinu. Ef þið eruð að leita að brúðkaupsstað sem á sér enga hliðstæðu, af hverju ekki að segja „já“ í fornum Hellunum við Hellu?
Hellarnir eru gegnsýrðir af sögu og umvafnir stemningu sem er bæði náin og ógleymanleg, og þar af leiðandi einstök umgjörð fyrir hjónavígslu. Í fallegasta hellinum okkar geta pör gefið hvort öðru jáyrði undir gömlum strompi í hellisloftinu, þar sem dagsbirtan myndar fallegan ljósgeisla. Talið er að hellirinn hafi eitt sinn verið notaður til tilbeiðslu, sem gefur tilefninu enn meiri sögulega dýpt og þýðingu.

Einstök umgjörð
Við hýsum nokkur brúðkaup á hverju ári og engin tvö eru eins. Allt frá víkingabrúðkaupum til náinna leyniathafna höfum við tekið á móti pörum hvaðanæva úr heiminum, sem hvert um sig færir sínar eigin hefðir og persónulegan blæ inn í þessa einstöku umgjörð.
Einn kosturinn við að ganga í hjónaband í hellunum er alræmt ófyrirsjáanlegt veðurfar á Íslandi. Hver sem veðurspáin er fer athöfnin fram í þurru og skjólgóðu umhverfi án þess að töfrar umhverfisins glatist.

Hvort sem þið eruð að skipuleggja veislu með allt að hundrað gestum eða einkaathöfn fyrir ykkur tvö og vígslumanninn, þá sjáum við um málið.
Mörg pör sjá sjálf um skipulagninguna, en til að gera hana sem auðveldasta vinnum við líka gjarnan með brúðkaupsskipuleggjendum. Meðal traustra samstarfsaðila okkar eru Pink Iceland, Hotel Rangá, Iceland Wedding Planner og Lux Weddings, en reyndir brúðkaupsskipuleggjendur þeirra geta hjálpað ykkur að láta draumana rætast.


