Munu bandarískir vísindamenn leysa ráðgátu hellanna við Hellu?

Teymi bandarískra vísindamanna vinnur nú að aldursgreiningu hellanna á Ægissíðu í Rangárþingi ytra og hugsanlegu hlutverki þeirra í landnámi Íslands.

Teymi bandarískra vísindamanna vinnur nú að aldursgreiningu hellanna á Ægissíðu í Rangárþingi ytra og hugsanlegu hlutverki þeirra í landnámi Íslands. Teymið rannsakar ristur á hellisveggjum og setlög í hellunum. Þau nota nýstárlega aðferð til að greina hinar fjölmörgu og fjölbreyttu ristur í hellunum, aðferð sem ekki hefur áður verið notuð á Íslandi.

Hin mikla ráðgáta hellanna við Hellu

Rannsóknarteyminu stýra Laura Haynes, prófessor í jarðfræði, og Elizabeth Lastra, prófessor í listasögu miðalda, við Vassar College í New York-ríki í Bandaríkjunum.

Hellarnir við Hellu hafa lengi vakið spurningar meðal sagnfræðinga, fornleifafræðinga og jarðfræðinga og margir hafa velt fyrir sér uppruna þeirra og tilgangi. Árið 2017 birti Árni Freyr Magnússon sagnfræðingur ritgerð um aðferðir til að ákvarða aldur hellanna. Niðurstaða rannsóknar Árna Freys var sú að aldur hellanna mætti ákvarða með fjórum meginaðferðum: með því að skoða sögulegar heimildir, rannsaka áletranir og ristur á veggjum þeirra, aldursgreina mannvistarlög út frá gjóskulögum og rannsaka gripi sem fundist hafa í einum hellanna.

Vísindamenn að rannsaka hellana við Hellu.

„Aðferð bandarísku sérfræðinganna er mjög áhugaverð. Hún beinist að því að rannsaka risturnar á veggjunum. Þegar ég var að rannsaka þetta fyrir fimm árum hafði ég ekki hugmynd um að erlendir sérfræðingar myndu brátt hefja rannsóknir með svo háþróaðri tækni, sem íslenskir fræðimenn hafa almennt ekki aðgang að. Það er líka spennandi að sjá bandaríska sérfræðinga í listasögu og jarðfræði velja hellana við Hellu fyrir rannsóknir sínar,“ segir Árni Freyr.

Byltingarkennd tækni tekin í notkun

Rannsóknarteymið notar RTI-myndgreiningu (Reflectance Transformation Imaging) og röntgenflúrljómunargreiningu. RTI er notað til að rannsaka ristur á hellisveggjum. Myndavél er komið fyrir í hellunum og ljósi beint úr ýmsum áttum á risturnar, sem eru myndaðar í hárri upplausn. Þannig er hægt að kortleggja útlit og lögun ristnanna nákvæmlega. Afraksturinn verður nákvæmt þrívíddarkort af hellisveggjunum.

Því næst er röntgenflúrljómunargreining notuð til að rannsaka steinefnaútfellingar á hellisveggjunum, sem safnast hafa fyrir úr vatni sem seytlað hefur í gegnum bergið frá upphafi. Þessar útfellingar, sem stundum liggja ofan á ristunum, geta gefið mikilvægar vísbendingar um aldur ristnanna og þar með hellanna, auk upplýsinga um gróðurfar og loftslag á ólíkum tímabilum í sögu hellanna.

Samanburður ólíkra gagna gæti loks varpað ljósi á hellana við Hellu

Samsetning þessara steinefna getur veitt mikilvæga innsýn í það hvenær hellarnir voru grafnir og teknir í notkun.

Teymið mun einnig rannsaka setlögin í hellunum og tengsl þeirra við myndun Íslands í víðara samhengi. Með ítarlegri greiningu á þessum lögum vonast sérfræðingarnir til að geta ákvarðað uppruna hellanna nákvæmar.

Árni Freyr bíður spenntur eftir niðurstöðum rannsóknarinnar. Hann viðurkennir að aldursgreining manngerðra hella hafi reynst íslenskum fræðimönnum erfið, en með bættri tækni gæti sannleikurinn um uppruna þessara merkilegu mannvirkja loks komið í ljós.