Á Íslandi tekur þú eftir því að bæði heimamenn og ferðamenn klæðast prjónuðum ullarpeysum. Margar þeirra eru með einkennandi mynstrað berustykki yfir axlir og bringu. Þessi tegund peysu kallast lopapeysa – peysa prjónuð úr lopa. Listin takmarkast þó ekki við peysur – sokkar, húfur, vettlingar og jafnvel „bjórvettlingar“ eru algengar vörur úr íslenskri ull. En hvað gerir ullarpeysu svona sérstaka?

Leyndarmálið felst í ullinni sjálfri. Íslenska sauðkíndin hefur aðlagað sig harðneskjulegu loftslagi í aldanna rás og gefur ull sem er bæði einangrandi og andar vel. Ullin er tvöföld: mjúkt þel sem heldur hita og grófara tog sem hrindir frá sér vindi og raka. Þess vegna heldur lopapeysa á þér hita jafnvel í röku eða vindasömu veðri, fullkomin fyrir síbreytilegt veðurfar á Íslandi.
Hvort sem amma þín prjónaði peysuna eða þú keyptir hana í ullarbúð í héraði, þá er ekta ullarpeysa nauðsynleg, sérstaklega í landi eins og Íslandi. Mörgum ferðalöngum kemur á óvart að þessar ullarpeysur eru oft notaðar sem yfirhöfn frekar en undir jökkum, sérstaklega á mildum en vindasömum dögum.
Við hverju má búast þegar þú klæðist íslenskri ull
Eitt sem gestir ættu að vita er að íslensk ull getur stungið svolítið í fyrstu, sem er algjörlega eðlilegt og hluti af því sem gerir hana svo endingargóða. Yfirleitt leysist það með því að vera í þunnu lagi undir og með tímanum venst maður því. Til að tryggja sem besta einangrun er best að innsta lagið sé líka úr ull (mjúkar ullarvörur fást líka!).

Sauðfjárbóndinn sem prjónar peysur úr ull eigin kinda
Hanna Valdís Guðjónsdóttir er sauðfjárbóndi í héraðinu og ein af mörgum konum á svæðinu sem prjóna þessar peysur. Hanna notar ull af eigin kindum og hefur nýlega farið að miðla þekkingu sinni til annarra. Hún býður upp á uppskriftir – og jafnvel pakka með efni – svo fólk geti prjónað sína eigin ekta ullarsokka eða peysur heima. Ein af peysuhönnunum hennar sækir innblástur í Hellana við Hellu, þar sem hún leiðir einnig áhugaverðar ferðir í frítíma sínum og fléttar saman handverk, sögu og frásagnir úr héraðinu. Uppskriftina að Hellupeysunni má kaupa í móttöku Hellanna við Hellu.

Fyrir ferðalanga sem vilja taka með sér merkingarbæran minjagrip heim er lopapeysa ekki bara peysa – hún er hluti af íslenskri menningu, mótuð af náttúrunni, hefðinni og hagleikshöndum kynslóðanna. Víða á Íslandi má finna ekta ullarbúðir, t.d. notalega ullarmarkaðinn á Hellu. Verslaðu í heimabyggð og fáðu þér ekta ullarpeysu sem er prjónuð af alúð – og líklega af konunni sem situr við búðarborðið!