Á miðjum íslenskum vetri, þegar dagsbirtan er af skornum skammti og veðrið oft sem harðast, fagna Íslendingar komu þorrans – hefðbundins mánaðar í gamla íslenska tímatalinu. Þorri hefst seint í janúar og stendur fram í lok febrúar, og hann veitir innsýn í sögu Íslands, matarmenningu og samfélagshefðir.

Bæði heiti mánaðarins og heiti miðsvetrarblótsins, þorrablóts, eru dregin af mannsnafninu Þorri. Í Orkneyinga sögu segir að Þorri hafi stofnað til þorrablótsins. Nafnið Þorri hefur lengi verið tengt nafni Þórs, þrumuguðs norrænnar goðafræði.
Mánuðurinn hefst á bóndadegi, sem haldinn er hátíðlegur fyrsta föstudag í þorra.
Áður fyrr var bóndanum sýndur heiður á þessum degi. Honum var tekið með gestrisni, mat og virðingu, til marks um vonina um seiglu og gæfu það sem eftir lifði vetrar. Í dag er eiginmönnum, kærustum og öðrum fagnað með litlum gjöfum, góðum mat eða þakklætisvotti.

Nú á dögum er þorrinn best þekktur fyrir sérstakar matarhefðir sínar, sem einu nafni kallast þorramatur. Þessi matur á rætur sínar að rekja til tíma þegar geymsla matvæla var lífsnauðsynleg. Án kæliskápa treystu Íslendingar á aðferðir á borð við kæsingu, þurrkun, reykingu og söltun til að geyma mat yfir veturinn. Algengt var að súrsa mat í mysu, gerjaðri aukaafurð mjólkur sem gefur honum sérstakt súrt bragð.
Þorramatur er hlaðborð eða trog með hefðbundnum íslenskum súrmat og geymslumat, til dæmis:
Svið – sviðinn kindahaus, hefðbundið klofinn og soðinn
Súrsaðir hrútspungar – hrútspungar súrsaðir í mysu
Kæstur hákarl – einn þekktasti og jafnframt mest krefjandi hefðbundni rétturinn
Sviðasulta – pressaður kindahaus í hlaupi
Súrsuð lifrarpylsa og blóðmör – íslenskar lifrar- og blóðpylsur, súrsaðar í mysu á þessum árstíma
Harðfiskur – loftþurrkaður fiskur (yfirleitt þorskur eða ýsa), oftast borðaður með smjöri
Hangikjöt – reykt lambakjöt, borið fram heitt eða kalt

Þessir réttir eru yfirleitt bornir fram með rúgbrauði, flatkökum, smjöri, rófustöppu og kartöflum. Með matnum, sérstaklega hákarlinum, er oft drukkið brennivín, tært kúmenbragðbætt brennivín sem stundum er kallað „svarti dauði“.
Félagslegt hjarta þorrans er þorrablótið, miðsvetrarveisla sem haldin er allan mánuðinn. Áður fyrr var þorrablótið samkoma þar sem árstíðinni var fagnað og félagsleg tengsl styrkt. Á Íslandi nútímans eru þorrablót allt frá litlum fjölskyldumáltíðum til stórra samkoma sveitarfélaga eða fyrirtækja, oft með ræðum, söng og dansi – og, satt best að segja, töluverðri drykkju.

Fyrir ferðalanga býður þorrinn upp á meira en óvenjulegt bragð – hann er boð um að upplifa djúp tengsl Íslands við fortíðina. Að smakka þorramat veitir innsýn í hvernig Íslendingar aðlöguðust lífinu við jaðar norðurheimskautsins og breyttu nauðsyn í hefð. Ef þig langar að kynnast hefðbundnum íslenskum mat og líða eins og víkingi um stund í einstöku umhverfi forns hellis, hafðu þá endilega samband við Hellana við Hellu – við sníðum upplifunina gjarnan að þínum óskum.