MENNINGARARFUR & RANNSÓKNIR

HELLARNIR VIÐ HELLU

Forn leyndarmál Íslands afhjúpuð

FORN LEYNDARMÁL ÍSLANDS AFHJÚPUÐ

Hellarnir við Hellu eru merkilegur og dularfullur sögustaður. Þeir eru staðsettir á bænum Ægissíðu sem stendur rétt utan við þorpið. Manngerðir hellar hafa fundist víða á Suðurlandi en óvenju margir eru á Ægissíðu þar sem tólf hellar hafa fundist. Hellarnir voru höggnir í sandstein sem myndast hefur úr foksandi og jökulseti. Á löngum tíma þjöppuðust sandkornin og límdust saman í fastan sandstein.

Hellarnir eru mismunandi að stærð og lögun og hafa verið nýttir í ýmsum tilgangi í aldanna rás. Þeir voru oft traustari og endingarbetri en hefðbundin torf- og grjóthús þess tíma. Tveir hellanna á Ægissíðu, Fjóshellir og Hlöðuhellir, eru meðal stærstu manngerðu hella sem fundist hafa á Íslandi. 

Hellarnir hafa varðveist misvel í tímans rás en þeim var vel viðhaldið á meðan þeir voru í notkun. Í dag eru margir hellar á Íslandi hins vegar í slæmu ástandi og í hættu á frekari skemmdum. Styrkur bergsins, lögun og þykkt lofts og veggja og hvernig inngangar og loftræsistrompar voru gerðir skiptir miklu máli. Þegar hellar eru berskjaldaðir fyrir veðri og vindum geta frost, raki og vindrof valdið verulegum skemmdum og jafnvel leitt til hruns. Vel gerðir hellar geta hins vegar enst öldum saman ef frágangur er góður og þeir eru varðir gegn veðri.

Uppruni Hellanna við Hellu er hulinn leyndardómi. Sumir sagnfræðingar hafa leitt líkur að því að þeir séu eldri en norrænt landnám á Íslandi. Gætu fornir Keltar hafa gert þessa hella? Voru þeir notaðir til tilbeiðslu eða helgisiða? Í aldaraðir hafa þessar spurningar vakið forvitni fræðimanna jafnt sem gesta. Meðal heillandi einkenna Hellanna við Hellu eru fornir krossar, flóknar veggristur, syllur, strompar og höggvin steinsæti. Þessar merku minjar eru vel sýnilegar og veita einstaka innsýn í líf og trú þeirra sem eitt sinn nýttu hellana. Allir hellarnir á Ægissíðu, Hellarnir við Hellu, eru friðlýstar fornminjar. 

ARFLEIFÐ HELLANNA VIÐ HELLU

Fjölskylda okkar á Ægissíðu hefur annaðst hellana á bænum í nærri 200 ár. Undir lok ársins 2019 höfðum við gert upp fjóra af hellunum tólf á jörðinni og opnað þá fyrir gestum. Árið 2024 hófum við uppgröft í fimmta hellinum, þar sem gestir geta nú skoðað fornleifar. Fjölskyldan leggur metnað sinn í að færa hellana aftur til fyrra horfs og halda sögu þeirra á lofti. Við deilum sögum sem gengið hafa á milli kynslóða um dularfullu hellana og lífið á Íslandi áður en norrænir landnámsmenn komu til landsins.

Hellarnir eru manngerðir en enginn veit nákvæmlega hvenær þeir voru upphaflega gerðir. Sumar heimildir benda til þess að Keltar, sem kunna að hafa búið á Íslandi áður en norrænt landnám hófst undir lok 9. aldar, hafi höggvið þá út. Í gegnum tíðina hafa hellarnir til dæmis verið notaðir sem vistarverur, fjárhús og geymslur. Eftir seinni heimsstyrjöld fóru Íslendingar að byggja hús úr steinsteypu og féllu þá hefðbundnir torfbæir og hellar smám saman úr notkun.

Öll endurbygging hellanna er í samvinnu við og undir eftirliti Minjastofnunar Íslands. Meginmarkmiðið er að halda áfram að endurgera hellana og varðveita fornar minjar, jafnframt því að opna fleiri hella fyrir almenningi.

Uppgröftur í Hrútshelli

Við höldum áfram að gera nýjar og spennandi uppgötvanir í hellunum. Við uppgröft í Hrútshelli árið 2024 kom í ljós fallegt hellulagt gólf sem þekur helming hellisins, auk hellulagðs svæðis við innganginn. Hellulögð gólf hafa ekki fundist í öðrum hellum á Ægissíðu. Uppgröfturinn leiddi einnig í ljós áhugaverðar mannvirkjaleifar í miðjum hellinum. Hellirinn er enn í rannsókn og margt er ólært um sögu hans og tilgang.

Allur uppgröftur og varðveislustarf er unnið í samstarfi við Ugga Ævarsson, minjavörð Suðurlands, og Minjastofnun Íslands. Við tökum fagnandi hugmyndum og tilgátum um mannvirkin og hvað þau kunna að hafa verið notuð til. Gestir geta litið inn í Hrútshelli og séð hluta mannvirkjanna og vel varðveitta gólfið með eigin augum.

Munu bandarískir vísindamenn leysa ráðgátu
hellanna við Hellu?

Teymi bandarískra vísindamanna vinnur nú að því að leysa ráðgátu hellanna okkar. Rannsóknarteyminu stýra Laura Haynes, prófessor í jarðfræði, og Elizabeth Lastra, prófessor í listasögu miðalda. Með byltingarkenndri tækni og nýstárlegum rannsóknaaðferðum vinna þær að því að ákvarða aldur hellanna og kanna hlutverk þeirra í landnámi Íslands.

Lestu meira um rannsóknir þeirra og nýstárlegar aðferðir í grein sem birtist á Stuck in Iceland.