Algengar spurningar

Hér finnur þú svör við nokkrum af þeim spurningum sem við fáum oftast.
Ekki hika við að hafa samband ef það er eitthvað fleira sem þú vilt vita.

○ Hvenær eru ferðirnar?
24. ágúst til októberKl. 10:00,12:00,14:00, 16:00
Nóvember til maíKl. 10:00, 12:00, 14:00
1. júní – 24. júníKl. 10:00, 12:00, 14:00, 16:00
25. júní – 23. ágústKl. 10:00, 11:00, 12:00, 13:00, 14:00 og 16:00
 

Ferðirnar taka 60–75 mínútur.

Ferð með leiðsögn fyrir 2 fullorðna og 2 börn (6–15 ára)

Í hellunum er um 4°C hiti allt árið. Klæddu þig eftir veðri, því ganga þarf utandyra á milli hellanna.

Ekki þarf sérstakan skóbúnað fyrir hellana. Yfir veturinn mælum við þó með traustum skóm vegna snjós eða hálku.

Nei. Ferðirnar eru alfarið gangandi, svo ekki þarf að keyra.

Mjög stutt, innan við 600 m (0,4 mílur).

Já, taktu fullt af myndum og endilega deildu þeim sem víðast. Þú mátt nota flass.

Já! Bílastæðin eru ókeypis. 😊

Þú hittir leiðsögumanninn okkar í móttökunni, þar sem ferðin hefst.

Ekki þarf að bóka fyrirfram en þér er velkomið að gera það á vefsíðunni. Miða er einnig hægt að kaupa beint í móttökunni fyrir ferð.

Nei. Hellarnir eru friðlýstar minjar og því verða allir gestir að fara í ferð með leiðsögn.

Því miður ekki. Í sumum hellunum eru tröppur og þröngir gangar.

Nei. Þetta eru fornir manngerðir hellar, höggnir í sandstein og móberg, með fjölbreyttum jarðlögum.

Já! Hægt er að bóka einkaferðir fyrirfram á vefsíðunni okkar, með tölvupósti (info@cavesofhella.is) og síma. Við bjóðum upp á tvenns konar einkaferðir:

  • Hefðbundin einkaferð með leiðsögumanni af svæðinu

  • Lúxusferð – hefðbundin ferð með smakki á Flóka áfengi og sælkeraréttum úr héraði

Sumir hafa sést; þú verður að koma sjálf(ur) til að komast að því.

Við erum á frábærum stað við hringveginn, miðja vegu milli Reykjavíkur og Víkur, um 100 km í hvora átt.

Já, fjölskylda okkar hefur annast hellana í nærri 200 ár. Hellarnir eru friðlýstar minjar og endurgerðarverkefnið er unnið í samráði við Minjastofnun Íslands.

Já, við opnuðum fjóra hella fyrir almenningi í lok ársins 2019. Fjölskyldan leggur sig fram um að endurgera hellana og halda sögunni lifandi. Árið 2024 opnuðum við fimmta hellinn.

Já, gríptu penna í móttökunni! Í hellunum eru ristur í veggjum með nöfnum, upphafsstöfum og teikningum, og nú bjóðum við gestum okkar að skrifa nöfnin sín að gömlum íslenskum sið í gestabókina okkar… sem er móttökuhúsið. Kvittaðu fyrir komuna!

Ertu enn með spurningar?

Finnurðu ekki svarið sem þú leitar að? Við aðstoðum gjarnan.
Sendu okkur tölvupóst og teymið okkar svarar þér eins fljótt og auðið er.